18.12.1980
Efri deild: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)
171. mál, jöfnunargjald
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Meiri hl. nefndarinnar sýndi það sérstaka umburðarlyndi og lýðræðisvilja að hafa andstæðing sinn, minni hl. nefndarinnar, viðstaddan umræður sínar um hvernig meiri hl. kynni að geta breytt eigin tillögu. Ég vil hins vegar taka það fram til að fyrirbyggja misskilning hér og síðar, að minni hl. nefndarinnar, andstæðingur þessarar till., hv. þm. Kjartan Jóhannsson, er á engan hátt löggiltur túlkandi þeirra skoðunar meiri hl. á þessu ákvæði sem fram kom í ræðu hans áðan.