19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)

178. mál, frestun á fundum Alþingis

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hér eru umræður um till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis. Hafa spunnist þar af nokkuð almennar umræður um efnahagsmálin og fyrirætlanir ríkisstj. í sambandi við efnahagsaðgerðir. Ríkisstj. er ekki tilbúin til að skýra frá sínum fyrirætlunum í þessu efni og skal ég ekki hafa um það fleiri orð. Ég vil aðeins fullvissa þingheim um það, að varðandi vexti verður farið að lögum.