19.12.1980
Sameinað þing: 38. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1790 í B-deild Alþingistíðinda. (1957)

1. mál, fjárlög 1981

Forseti (Jón Helgason):

Formaður fjvn. hefur beðið mig að benda á leiðréttingu sem gera á við 90. lið á bls. 5 í brtt. á þskj. 326 þar sem stendur „Bygging orlofsheimila ASÍ.“ Þar á að standa: Bygging orlofsheimila verkalýðssamtakanna.