19.12.1980
Efri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1844 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)

111. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar deildar hefur fjallað um frv. í þeim búningi sem það birtist nú eftir eina breytingu sem gerð var í hv. Nd. Hún miðar að því að greiða fyrir flutningi lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Mælir nefndin einróma með því að frv. verði samþykkt í þann veg sem það kemur hingað á ný.