19.12.1980
Efri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1847 í B-deild Alþingistíðinda. (2015)

Þinglausnir

Forseti (Helgi Seljan):

Þar sem ég geri ráð fyrir að þetta verði síðasti fundur þessarar hv. þd. fyrir jólahátíðina vil ég nota þetta tækifæri til að færa hv. þdm. mínar innilegustu jóla- og nýársóskir og þakka þeim ágæta samvinnu á þessu ári, samvinnu sem hefur verið mér til óblandinnar ánægju. Störf öll hafa gengið með þeim ágætum sem einkenna þessa ágætu hv. deild.

Sömuleiðis flyt ég skrifstofustjóra og öllu starfsfólki þingsins bestu jóla- og nýársóskir og þökk fyrir gott starf og samstarf í hvívetna.

Þeim hv. þdm., sem um langan veg eiga heim að fara, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vænti þess, að við megum öll heil hittast á næsta ári.