19.12.1980
Efri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2016)
Þinglausnir
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Fyrir hönd okkar þm. í þessari hv. deild vil ég þakka hlý orð í okkar garð og góðar óskir. Ég tek undir þakkir forseta til starfsmanna þingsins og þakka honum frábæra og drengilega fundarstjórn og umburðarlyndi við okkur. Fyrir hönd okkar þm. hér í deild vil ég færa forseta og fjölskyldu hans bestu jóla- og nýársóskir og árna honum góðrar heimferðar og heimkomu. Ég vil biðja þm. að staðfesta þessar óskir með því að rísa úr sætum.