19.12.1980
Neðri deild: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1848 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)

171. mál, jöfnunargjald

Frsm. meiri hl. (Guðrún Hallgrímsdóttir):

Herra forseti. Nál. það, sem ég mæli hér fyrir, er um frv. til l. um jöfnunargjald. Fjh.- og viðskn. Nd. hefur rætt frv. og mælir meiri hl. hennar með því að það verði samþykkt með þeirri breytingu sem varð á frv. í Ed. og getið er um á sérstöku þskj. Einstakir nm. áskilja sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt.

Undir nál. rita hv. þm. Halldór Ásgrímsson, Matthías Á. Mathiesen, Ingólfur Guðnason og Matthías Bjarnason, Guðrún Hallgrímsdóttir og Albert Guðmundsson.