19.12.1980
Neðri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

160. mál, minnsta mynteining við álagningu opinberra gjalda

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Enda þótt ég hafi samþykkt frv. þetta við 2. umr. tel ég það harla lítils virði að vera að setja lög um að fella niður aura við útreikning, vegna þess að ég held að aurarnir verði orðnir einskis virði um mitt næsta ár.