19.12.1980
Neðri deild: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1859 í B-deild Alþingistíðinda. (2045)

Þingfrestun

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd deildarmanna þakka góðar óskir forseta í okkar garð. Sömuleiðis þakka ég honum fyrir skörulega og góða fundarstjórn það sem af er þessu þingi og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Enn fremur vil ég nota þetta tækifæri til þess að óska starfsfólki öllu og fjölskyldum þess gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.