20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1862 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

1. mál, fjárlög 1981

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég var einn af þeim sem varð undrandi er ég heyrði fréttir útvarps og sjónvarps í gærkvöld þar sem einn hv. þm. lýsti því yfir, að hann hefði látið atkv. sitt af hendi fyrir tiltekna fjárútvegun. Mér er sagt af þeim sem gerst þykjast vita, að þessi fjárútvegun verði ekki af hendi látin. Þess vegna held ég, að sé ráðlegast fyrir alþm. að samþykkja þetta hér og nú til þess að eiga engin eftirkaup með þetta mál, og segi já.