20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1863 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)

1. mál, fjárlög 1981

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Hér er um að ræða tillögu um umtalsverða hækkun til Fiskræktarsjóðs, en hv. stjórnarliðar hafa haft á orði mjög hér á hinu háa Alþingi að það beri að efla fiskrækt í landinu. Ég hefði þess vegna talið, að það væri eðlilegt að hækka þessa tölu að verulegu leyti, og segi já.