20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1864 í B-deild Alþingistíðinda. (2067)

1. mál, fjárlög 1981

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Fiskifélag Íslands hefur á undanförnum árum gert stórmerkar tilraunir á sviði fiskræktar í landinu. Ég endurtek það sem ég sagði áðan, að stjórnarliðar hafa á þessu þingi og hinu síðasta lýst miklum áhuga á eflingu og aukningu fiskræktar á landinu. Sérstaklega hafa hv. þm. Framsfl. lýst áhuga sínum á eflingu fiskræktar sem hliðarbúgreinar. — Herra forseti. Ég segi já.