20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1866 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
1. mál, fjárlög 1981
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Á næturfundi nákvæmlega 4 mínútur yfir 3 var yfirlýst af hæstv. fjmrh., að engar yfirlýsingar yrðu gefnar um það, hvernig staðið yrði að útboði varðandi sjúkrahúsbyggingu á Ísafirði. Ég tel þess vegna fullreynt að það sé nokkuð mikill skortur á vilja í þeim efnum að koma heilsugæslustöðinni þar í gagnið. En álit mitt er að hér sé um mikla sóun fjármuna að ræða með því að hafa byggingu svo lengi í smíðum eins og þar hefur verið. Ég óskaði eftir því, að þannig yrði staðið að útboði að hægt verði í febrúarmánuði á árinu 1982 að taka í notkun heilsugæsluálmu sjúkrahússins. Ég tel að aðeins hefði þurft vilja til þess að standa þannig að þessum málum. Að mínu viti er óeðlilegt að þriggja manna nefnd geti haft jafnmikil völd eins og sú nefnd hefur sem nefnist samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir. Ég segi því já.