29.10.1980
Efri deild: 7. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 316 í B-deild Alþingistíðinda. (208)
33. mál, málefni Flugleiða hf.
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Ég tel að menn verði að hafa það í huga, þegar málefni Flugleiða eru rædd, að þau vandamál, sem nú eiga sér stað í fluginu, eiga sér ekki einungis stað hér á landi, heldur um allan heim. Ég tel að það þjóni litlum tilgangi að karpa hér klukkustundum saman, dögum saman um þetta mál og sverta stjórn fyrirtækisins og aðra sem nálægt þessum málum hafa komið. Það má vissulega gagnrýna ýmislegt, en ég held að menn ættu að gæta hófs í þeim efnum.
Við Alþfl.-menn höfum skýrt frá því, að við styðjum þetta frv., þó við höfum vissulega fyrirvara varðandi einstakar greinar og þá sérstaklega varðandi 5. gr. frv., en við teljum að það sé nauðsynlegt að ræða það í fjh.- og viðskn., þar verði tekist á um þau mál og það lagfært sem miður fer.
Ég vil vekja athygli á því, að það er ekki einungis að hundruð manna hafa misst atvinnu hjá þessu fyrirtæki, heldur eru málin þannig komin að það er klukkustundarspursmál hvort allir hinir, sem eftir eru, missi atvinnuna einnig. Það getur oltið á miklu að við afgreiðum þetta frv. sem fyrst úr deildinni og gerum það á þann veg að fyrirtækið geti haldið áfram. Ég fullyrði um ástand fyrirtækisins, að reksturinn er miklu verr farinn en fram hefur komið. Það þarf skjót viðbrögð til að bæta úr.
Ég veit að fólkið, sem enn starfar hjá fyrirtækinu, fylgist með öllum umr. hér. Það er kvíðið, það óttast að ef við drögum afgreiðslu þessa frv. sé atvinnu þess ekki borgið. Þess vegna vil ég nota þetta tækifæri til að skora á fjh.- og viðskn. að hraða afgreiðstu frv. eins og kostur er á. Það þarf vissulega að leita allra þeirra upplýsinga sem mögulegt er að fá, en ég bið menn að hafa í huga að ef þetta mál dregst um of er e.t.v. búið að skemma meira en nokkurn hafði órað fyrir.