20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1867 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

1. mál, fjárlög 1981

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Það er neyðarástand vegna þrengsla í sjúkrahúsinu á Akureyri og mjög alvarlegt ástand að skapast þar. Hér er um að ræða till. um að hækka fjárhæð til byggingarframkvæmda við þetta sjúkrahús upp í þá tölu sem heilbrrn. og Innkaupastofnun ríkisins, sem þykir ekki útlátasöm stofnun, gerði till. um til fjvn. Því miður lækkaði þessi upphæð í meðförum meiri hl. n. Ég tel, að það sé brýn nauðsyn á að koma þessari framkvæmd sem fyrst í gagnið, og segi já.