20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)

1. mál, fjárlög 1981

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Tekju- og eignarskattar í fjárlagafrv. eru hækkaðir um 42% eins og forsendur fjárlagafrv. Þjóðhagsstofnun gefur þær upplýsingar, að þessi skattvísitala þýði að tekju- og eignarskattar verði eins og í fjárlagafrv., hækki ekki umfram verðlagshækkanir. Þessi till. er flutt til þess að vekja athygli á þessu. Ég segi já.