20.12.1980
Sameinað þing: 39. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1874 í B-deild Alþingistíðinda. (2111)

Þingfrestun

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Í nafni okkar alþm. þakka ég hæstv. forseta góðar og hlýjar óskir í okkar garð. Jafnframt þakka ég forseta ánægjulegt samstarf um leið og ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Starfsmönnum Alþingis óska ég einnig gleðilegra jóla og farsæts komandi árs. Ég bið alþm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]