27.01.1981
Sameinað þing: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 24. jan. 1981.

Ingólfur Guðnason, 5. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. og 2. varamanns Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra taki 3. varamaður, Brynjólfur Sveinbergsson mjólkurbússtjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Hér liggur fyrir kjörbréf Brynjólfs Sveinbergssonar ásamt bréfi og skeyti frá 1. og 2. varamanni um forföll þeirra. Þarf að taka þetta til athugunar og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til skoðunar. Verður gefið fundarhlé á meðan. — [Fundarhlé.]