27.01.1981
Sameinað þing: 41. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)
Rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Ólafur Jóhannesson utanrrh.):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Brynjólfs Sveinbergssonar, Hvammstanga, sem er 3. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, en eftir því er óskað að hann taki sæti hér á Alþingi í forföllum Ingólfs Guðnasonar alþm., Hvammstanga.
Það liggur fyrir símskeyti frá 1. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Vegna embættisanna get ég undirritaður ekki mætt til þingsetu á Alþingi í forföllum Ingólfs Guðnasonar, Hvammstanga. Ég óska því eftir að Jón Ingi Ingvarsson rafvirkjameistari, Skagaströnd, taki sæti mitt.
Bogi Sigurbjörnsson, skattstjóri,
Siglufirði.“
Þá hefur borist svo hljóðandi bréf, með leyfi forseta:
„Hr. Jón Helgason, forseti Sþ.,
Alþingishúsinu,
Reykjavík.
Sökum anna get ég undirritaður ekki tekið sæti á Alþingi sem varamaður Ingólfs Guðnasonar, þm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, þegar Alþingi kemur saman til fundar í lok þessa mánaðar. Ég bendi á næsta varamann, sem er Brynjólfur Sveinbergsson, Hvammstanga.“
Það liggur þannig fyrir, að 1. og 2. varaþm. Framsfl. í Norðurlandskjördæmi vestra telja sig ekki geta tekið sæti á Alþingi nú vegna anna.
Kjörbréfanefnd hefur kannað kjörbréf fyrir Brynjólf Sveinbergsson og ekkert fundið við það athugavert. Leggur hún því til að kosning hans sé tekin gild og kjörbréfið samþykkt.