28.01.1981
Efri deild: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 1949 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)

182. mál, eftirlit með skipum

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Eins og segir í athugasemdum við lagafrv. þetta er það samið til samræmis við ákvæði í frv. til l. um breyt. á lögum nr. 85 frá 1936, um meðferð einkamála í héraði, sem mælt var fyrir áðan.

Í frv. er lagt til að sjó- og verslunardómur verði lagður niður, og vísast um rök fyrir þeirri breytingu til grg. með frv. Réttarfarsnefnd komst að þeirri niðurstöðu, að hentugast væri að dómarar á bæjarþingi eða aukadómþingi færu með dóminn eins og verið hefur. Eins og segir enn fremur í athugasemdum með frv. þessu skiptir þetta álitaefni aðallega máli í Reykjavík, en þar hafa dómarar í einkamálum lengi annast þessi próf. Dómara er að sjálfsögðu ætlað að kalla til sérfróða menn eftir almennum reglum þar að lútandi.

Að öðru leyti er hér um einfaldar breytingar að ræða og ég vísa að öðru leyti til athugasemdanna, en leyfi mér að lokum, herra forseti, að leggja til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.