03.02.1981
Sameinað þing: 44. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2069 í B-deild Alþingistíðinda. (2295)

371. mál, Reykjanesbraut

Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. skýr og greið svör og hvet til þess að hafist verði handa við viðhald á Reykjanesbraut hið fyrsta. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem fyrir liggja, verða þar slys fjórða hvern dag árið um kring og er því brýnna úrbóta þörf.