03.02.1981
Sameinað þing: 45. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2089 í B-deild Alþingistíðinda. (2322)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hljóðs í umr. utan dagskrár, er hv. 1. þm. Vestf. hóf, til að ítreka nokkrar spurningar er ég vildi gjarnan bera fram og fá svör hæstv. sjútvrh. við. Ég hefði talið eðlilegt að halda þessum umr. utan dagskrár áfram að loknu kaffihléi og vildi gjarnan spyrja hæstv. forseta hvernig á því stendur að þessum umr. er ekki haldið áfram.