17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)

370. mál, viðskiptahættir ríkisbanka

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Í framhaldi af því, sem hv. síðasti ræðumaður sagði hér síðast, vil ég leyfa mér að spyrja hæstv. bankamálaráðherra: Hefur hann hugsað sér að fylgja eftir því bréfi, sem þm. vitnað til, og sjá til þess að þeim viðskiptaháttum, sem hann gagnrýnir, verði hætt?