17.02.1981
Sameinað þing: 49. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2315 í B-deild Alþingistíðinda. (2514)

370. mál, viðskiptahættir ríkisbanka

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég vil mjög taka undir það sem kom fram hér hjá hv. 3. þm. Reykv. í fsp. til hæstv. viðskrh. Og ég vonast til þess, að honum takist að koma fram því sem upplýst er að hann skrifaði bönkunum um í þessu ákveðna bréfi, því að þeir viðskiptahættir, sem hér hafa verið til umræðu af hálfu bankana, eru að mínum dómi algerlega ósæmilegir.