03.11.1980
Neðri deild: 9. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 371 í B-deild Alþingistíðinda. (255)
Umræður utan dagskrár
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil taka það fram, að það orkar auðvitað tvímælis hvort almenn umr. um stöðu verslunarinnar á rétt á sér utan dagskrár. Ég vek athygli á þessu, en ekki þýðir að sakast um orðinn hlut. Mér þykir líklegt að fljótlega muni ég beita harkalegum niðurskurði á umr.