19.02.1981
Sameinað þing: 51. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2459 í B-deild Alþingistíðinda. (2618)
Umræður utan dagskrár
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Það hafa greinilega orðið einhver mistök hér. Ég var fyrir löngu búin að biðja um orðið. Ég ætla samt að koma hér upp, þó að segja megi að ráðh. sé búinn að ljúka þessu máli. Ég vil aðeins taka undir það, að þetta er mál sem allir eru reiðubúnir til samstarfs um.
Það er brýn nauðsyn að brugðist verið skjótt við, og ég get fallist á að þetta er í raun og veru tvíþætt. Það er annars vegar um að ræða þau atriði, sem lúta að því að endurskoða tryggingakerfið og aðlaga það ýmsum þáttum í ljósi reynslunnar, og hins vegar að koma til móts við þá aðila sem hafa orðið fyrir óbætanlegu tjóni bæði á fasteignum og atvinnulega. Ég fagna því, að þetta mál er komið á skrið hjá hæstv. ríkisstj., og ég legg áherslu á að hraðað verði raunhæfum aðgerðum,því að greinilegt er að víðs vegar um landið er neyðarástand hjá mönnum, sem horfa ekki aðeins upp á mannvirki sín í rústum, heldur einnig atvinnu sína og afkomu sem var til húsa í þessum mannvirkjum.
Eins og fram kom var þetta mál rætt utan dagskrár í Ed. áðan og ég ætla því ekki að ræða það frekar hér, hef tekið þar þátt í umr., en vil endurtaka að ég fagna því, að skriður er kominn á þetta mál hjá hæstv. ríkisstj.