23.02.1981
Neðri deild: 56. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2483 í B-deild Alþingistíðinda. (2646)

226. mál, atvinnuréttindi útlendinga

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Ég hef nokkrar athugasemdir að gera við þetta frv. Ég hef tjáð hæstv. félmrh. það og mun þess vegna ekki útskýra það hér frekar. En ég vænti þess, að geta komið fram skýringum og upplýsingum þegar um málið verður fjallað í hv. félmn., og er að sjálfsögðu reiðubúinn til þess að veita nefndarmönnum allar nánari upplýsingar um þetta efni.