26.02.1981
Efri deild: 60. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2605 í B-deild Alþingistíðinda. (2762)

231. mál, eftirlaun til aldraðra

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Út af þessari aths. hv. 5. þm. Vesturl. vil ég taka það fram, að þessi mál voru lítillega skoðuð þegar þetta mál var til meðferðar á sínum tíma og menn treystu sér ekki til þess að taka þetta inn. Mér finnst sjálfsagt að það verði reiknað út, hvað úr þessu yrði sem hér er verið að fjalla um, og það verði skoðað í heilbr.- og trn. hv. deildar.