11.03.1981
Neðri deild: 62. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2862 í B-deild Alþingistíðinda. (2980)
245. mál, útvarpslög
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð út af þessu máli.
Ég vil þó fyrst víkja að því, sem hv. þm. Pétur Sigurðsson kom hér að síðast, morsfréttum. Það komu hingað í Alþingi sjómenn sem höfðu verið fjarverandi allt upp í þrjá mánuði og sögðu mér að þeir hefðu ekki heyrt eitt einasta orð héðan frá landi allan þann tíma. Slíkt er auðvitað gersamlega óþolandi. Mér skilst, án þess að ég vilji um það fullyrða, að ekki sé um að ræða ýkjamikinn kostnað við að inna slíka þjónustu af hendi. Það hefði verið fróðlegt undir þessum umr., ef hæstv. samgrh. hefði getað upplýst þingheim eitthvað um stöðu þessa máls eða kannske menntmrh. — það er sama hvaðan það kemur, báðir eru þeir í Framsfl. En það er auðvitað óþolandi ástand ef þessu heldur áfram. Þessi fréttasending var felld niður á áramótum, að mér er tjáð. Það hlýtur að vera krafa sjómannastéttarinnar að aftur sé kippt í liðinn. Ef ég man rétt, — nú skal ég ekkert um það fullyrða, — minnir mig að eitthvað hafi verið á þetta minnst í „sjómannapakka“ á sínum tíma. Ég hafði ekki tækifæri til að kynna mér það frekar núna, en ég man ekki betur en að eitthvað hafi verið um það rætt í sambandi við lausn á sjómannadeilu að fyrir því yrði séð að þessi fréttaskeyti féllu ekki niður.
Nokkur orð út af frv. á þskj. 478. Ég hefði gjarnan viljað sjá viðbrögð hv. þm. Framsfl. í þessa átt fyrr en nú, en ég fagna því eigi að síður að þau koma fram þótt seint sé. Þing eftir þing var flutt frv. um bættar sjónvarpssendingar á fiskimiðin til handa sjómönnum. Hvert þingið á eftir öðru var slíkt frv. flutt, en hlaut aldrei náð fyrir eyrum þeirra sem þá réðu ferðinni. Ég hefði gjarnan viljað fá stuðning Framsfl. á þeim tímum við það mál. En ég endurtek: Ég fagna því, að augu manna hafa nú opnast og sjá nauðsyn á því. Það er líka frumkrafa sjómannastéttarinnar að hún fái að njóta sambærilegrar aðstöðu að því er þetta varðar og það fólk sem í landi býr — ekki síðri. Hér er um að ræða einstaklinga sem eru fjarri heimilum sínum svo vikum eða mánuðum skiptir. Það er auðvitað lágmarkskrafa að allt sé gert sem hægt er til þess að þeir njóti sambærilegra réttinda að því er þetta varðar og við sem í landi búum. Að því leyti er það fagnaðarefni að hv. þrír þm. Framsfl. hafa ná tekið sig saman um að flytja hér frv. í þessa átt. Er það vonandi vegna þess og í ljósi þess að þeir treysta því, að náverandi meiri hluti á Alþingi ásamt okkur í minni hluta, sem höfum barist fyrir þessu máli um árabit, komi málinu þessu fram og í gegnum þingið. Ég treysti því, að það sé það leiðarljós sem hv. flm. hafa stefnt á og fara eftir, — ekki til þess að svæfa það, heldur knýja á að málið verði afgreitt. Ég tek því mjög undir það, að við gerum það sem í valdi okkar stendur til að koma til móts við þær meginóskir sem uppi hafa verið um langt árabil af hálfu sjómannastéttarinnar um að hér verði bætt úr frá því sem nú er og verið hefur.
Hv. þm. Friðrik Sophusson, útvarpsráðsmaður með meiru — (Gripið fram í.) vara, það er ekki verra, — sýnir mér hér þær upplýsingar að það séu 127.5% aðflutningsgjöld af böndum. Því er hér með komið á framfæri og inn í umræðurnar.
Ég vil líka út af því, sem hér kom fram í sambandi við útgerðaraðila, segja að það er rétt, að þeir hafa tekið upp það sem ríkinu í raun og veru bar skylda til að framkvæma: að láta sjómenn fá einhverja nasasjón af því sjónvarpsefni sem hefur verið í gangi. Þeir eiga að sjálfsögðu þakkir skyldar fyrir það. Það má vera að einhverjir hafi talið að það væri skylda útgerðaraðila að sjá fyrir þessu. Ég er þeirrar skoðunar, að svo hafi ekki verið. Það hefur verið fyrst og fremst skylda ríkisvaldsins að sjá þeim einstaklingum, sem eru um borð í skipunum, fyrir þessum fjölmiðli eins og öðrum landsmönnum.
Ég tek mjög undir þetta mál og fagna breyttum viðhorfum af hálfu þm. Framsfl. Þau hefðu gjarnan mátt koma fyrr fram. En ég vænti þess, að þau verði ná til þess, þó ekki sé stærra skref stigið en hér um ræðir, að það sé gert í ljósi þess, að málið nái fram að ganga og því sé borgið í höndum núverandi stjórnarliða með stuðningi okkar hinna.