18.03.1981
Sameinað þing: 63. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 2961 í B-deild Alþingistíðinda. (3101)
256. mál, vegarstæði milli Vopnafjarðar og Fljótsdalshéraðs
Helgi Seljan:
Herra forseti. Ekki er nú gott fréttasambandið milli þm. á Norðurlandi eystra og Austfjörðum, það er greinilegt, ef þeir þm. Norðurl. e. hafa þær undrafréttir að Austurlandsþm. hafi á sínum tíma viljað leggja hafísveginn um Vopnafjarðarheiði. Þetta hef ég aldrei heyrt og er í fyrsta skipti sem ég heyri þær fréttir. (Gripið fram í.) Skiptir ekki máli hver þar er borinn fyrir því að vitanlega er þetta rangt með öllu. Þetta datt okkur aldrei í hug. Hins vegar vildum við gjarnan, — ef inn á þetta mál er komið í alvöru þó að ekki séu tök á því hér, — þá vildum við gjarnan ræða við þá hv. þm. Norðurl. e. um skiptingu á þessu fé milli Austurlands annars vegar og Norðurlands eystra hins vegar — en ég ætla ekki að fara út í það hér — og benda á visst ranglæti í þeirri skiptingu sem við létum viðgangast af sanngirnisástæðum á sínum tíma og af því einnig hvað þeir báru sig aumlega, þm. Norðurl. e., á þeim tíma. Þetta gerðum við af miskunnsemi við þá og reyndar íbúana þar um leið. (Gripið fram í: Var það ekki vegna hafíssins?) Hann náði býsna langt suður eftir þá, hv. þm.
Ég vildi aðeins í sambandi við það, sem hæstv. ráðh. kom inn á áðan, minna á það, að það er rétt að þm. geta af þeirri fjárveitingu, sem fer til hvers kjördæmis hverju sinni, varið ákveðinni upphæð til verkefnis af þessu tagi. En þá vil ég sérstaklega benda á annað sem ég held að hæstv. ráðh. hafi gleymt, en er aðalatriðið sem liggur að baki þessari till. sem er áherslutillaga varðandi ákveðinn lið í vegáætlun. Áætluð upphæð á þessu ári til tæknilegs undirbúnings nemur 845 millj. samkv. vegáætlun. Þessi tæknilegi undirbúningur er algerlega á vegum Vegagerðar ríkisins. Þm. einstakra kjördæma koma aldrei inn í skiptingu á þessum lið, — aldrei. En til að rifja það upp fyrir hæstv. ráðh. og öðrum þm. segir um þennan lið í vegáætluninni núna:
„Þau verkefni, sem einkum lenda á þessum lið, auk stjórnunarstarfa, eru því hönnunarkostnaður verkefna sem ekki hafa fjárveitingu.“
Það er því alveg ljóst, að ef Alþingi samþykkir þá till. sem hv. þm. Tryggvi Gunnarsson hefur hér mælt fyrir, þá er búið að leggja sérstaka áherslu á það við Vegagerð ríkisins að hún verji fé af þessum tæknilega undirbúningslið til þessa sérstaka verkefnis. Við skulum svo gjarnan athuga það, þm. Austf., hvort við getum ekki bætt þar við ef okkur þykir þar skorið við nögl af hálfu Vegagerðarinnar. En það er ótvíræð skylda hennar, eftir að slík samþykkt hefur verið gerð hér á Alþingi, að taka tillit til þess varðandi skiptingu á þessum sérstaka lið sem er ætlaður beinlínis til hönnunar þeirra verkefna sem hafa ekki fjárveitingu.