19.03.1981
Neðri deild: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3002 í B-deild Alþingistíðinda. (3149)
37. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. til l. um staðfestingu á brbl. um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Nefndin leggur til að frv. þetta verði samþykkt með einni lítils háttar breytingu. Það kemur fram á þskj. 505, að Kjaradómur fjallar um kjaramál ráðherra, hæstaréttardómara, ríkissaksóknara og ráðuneytisstjóra. Það hefur þótt eðlilegt, að þessir aðilar væru ekki aðilar að kjarasamningum á hverjum tíma. Nefndinni þykir eðlilegt að í þessum hóp sé biskup Íslands. Oft hefur verið um það rætt, að hann skyldi einnig vera í þessum hóp, og það mun nánast hafa verið fyrir mistök að það hefur fallið niður. Nefndin mælir eindregið með því, að biskup Íslands sé í þessum hópi manna, enda verður að teljast óeðlilegt að biskupinn sé aðili að kjarasamningum, og mun eðlilegra að Kjaradómur fjalli um hans mál ekki síður en þeirra manna sem ég hef hér upp talið.
Ég vildi síðan aðeins að lokum ítreka það, að nefndin mælir eindregið með því að frv. verði samþykkt með þeirri breyt. sem fram kemur á þskj. 505.