04.11.1980
Neðri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í B-deild Alþingistíðinda. (315)

17. mál, olíugjald til fiskiskipa

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Hér er vegið freklega að sjómönnum, en verður er verkamaðurinn launanna. Ég tek undir með hv. 7. þm. Reykv., Guðmundi J. Guðmundssyni, formanni Verkamannasambands Íslands, um að þetta mál er óhæfa, og gagnstætt honum segi ég nei.