24.03.1981
Sameinað þing: 64. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3052 í B-deild Alþingistíðinda. (3177)
381. mál, tenging dísilrafstöðva í eigu Rafmagnsveitna ríkisins
Fyrirspyrjandi (Ingólfur Guðnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svör hans. Það gleður engan meira en mig ef þessi mál eru komin í lag eða við það að komast í lag. En eftir þeim fréttum, sem ég hef, er því nú því miður ekki að fagna að fullu. Það mun hafa verið 6.–7. mars sem gerði óveður og þá varð rafmagnslaust þarna fyrir norðan í hálfan dag. Þá mun hafa verið búið að tengja þessa vél á Reykjaskóla, en það hafði þá láðst að kenna einhverjum að gangsetja hana svo að hún var sama og ótengd þess vegna. Eins mun eitthvað hafa verið gert í tengingu þessarar vélar á Hvammstanga, en einungis er hægt að keyra hana inn á landskerfið eða á mjög stórt svæði, en hún má sín ákaflega lítils ef um línubilanir er að ræða.
Ég veit að starfsmenn Rafveitnanna hafa haft mikið verk að vinna í vetur vegna síendurtekinna óhappa og þess vegna er ég ekkert undrandi yfir því að þeir hafi ekki haft tíma til alls. En ég vil benda á það, að frá okkar sjónarmiði- eða sjónarmiði þeirra sem við þetta eiga að búa — er málið miklu stærra en svo að hægt sé að bíða eftir að einhver einn maður eða einhverjir tveir menn geti unnið verkið, þegar nóg er af faglærðum mönnum á þessu sviði í næsta húsi. Þess vegna vil ég beina því til umhugsunar, hver vandi steðjar að ýmsum þegnum þessa lands þegar þeir virðast gleymast í hinu svokallaða kerfi. Og mér finnst sem öðrum sem búa á hinum afskekktu svæðum, þ. e frá stór-Reykjavíkursvæðinu séð, að þeir gleymist oft og menn muni ekki eftir því að þeir fáu og smáu eru líka hluti þjóðarinnar.
En ég þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin og vona að menn geti með rökum séð fram á bjartari tíma.