26.03.1981
Sameinað þing: 66. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3107 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)

Umræður utan dagskrár

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að láta hjá líða að þakka hv. síðasta ræðumanni fyrir allar þær upplýsingar, sem komu fram í ræðu hans, og vona að Þjóðviljinn birti þær umsvifalaust á morgun.