31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3210 í B-deild Alþingistíðinda. (3339)

378. mál, gjaldskrárhækkanir B-hluta fyrirtækja

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Það er ekki ástæða til að lengja þessar umr. Ég vildi einungis segja alveg skýrt og skorinort að enginn vafi er á því og enginn vafi hefur verið á því, að allar þær hækkanir, sem koma fram, ekki bara fyrir 1. maí, heldur fram til þess tíma, að kauplagsnefnd gerir útreikninga sína á vísitölunni, sem eins og ég sagði áðan er venjulega á tímabilinu milli 8. og 12. maí, verða taldar með.