31.03.1981
Sameinað þing: 67. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3210 í B-deild Alþingistíðinda. (3341)

378. mál, gjaldskrárhækkanir B-hluta fyrirtækja

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Mér er að vísu kunnugt um að flokkur hv. fyrirspyrjanda, Alþfl., á marga mjög færa sérfræðinga í því að falsa vísitöluna og hefur verið allra flokka iðnastur við það. Það er því kannske ekkert að undra þó að fyrirspyrjanda sé þetta mjög ofarlega í huga. En ég get svarað spurningunni afdráttarlaust neitandi. Mér er ekki kunnugt um að nein slík áform séu uppi.