01.04.1981
Neðri deild: 69. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3275 í B-deild Alþingistíðinda. (3392)

182. mál, eftirlit með skipum

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Frv. þetta til l. um breyt. á lögum um eftirlit með skipum er fylgifrv. með því frv. sem ég lýsti hér áðan. Það er einnig samið af réttarfarsnefnd og horfir til greiðari og skjótari meðferðar mála. Það var lagt fram í hv. Ed. og mælti allshn. þeirrar deildar eindregið með því, að það yrði samþykkt. Vænti ég þess, að það fái einnig góðar móttökur í þessari deild og verði sem fyrst að lögum. Ég vil leyfa mér að leggja til að því verði vísað til hv. allshn. að þessari umr. lokinni.