02.04.1981
Sameinað þing: 69. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3399 í B-deild Alþingistíðinda. (3474)
99. mál, eldsneytisgeymar varnarliðsins
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. með þessari till. til þál. um olíuhöfn og birgðastöð í Helguvík er þetta fyrst og síðast hagsmunamál byggðarlaganna í Njarðvík og Keflavík og íbúanna þar. Þetta er staðbundið hagsmunamál, enda hafa bæjarstjórnirnar bæði í Njarðvík og Keflavík árum saman krafist úrbóta.
Sameiginlega hafa þær fengið álit ýmissa stofnana, sem málið varðar. Álit allra hefur verið á einn veg: Af bæði tönkunum og leiðslunni stafar stórhætta og oftar en einu sinni hefur munað litlu að olía rynni úr þeim í höfnina. Geta menn væntanlega gert sér í hugarlund það ástand sem þá hefði skapast. Þá kemur einnig fram að leiðslurnar standa í vegi fyrir skipulagi hafnarsvæðisins í Keflavík og íbúðasvæðis í Njarðvík.
Hæstv. félmrh. sagði í ræðu sinni, að það væru einhver annarleg sjónarmið á bak við þessa þáltill., svo sem pólitísk. Ég vísa slíkri fullyrðingu algerlega á bug. Ef hv. þm. Alþb. vilja stuðla að því, að íbúar á svæðinu verði ekki látnir gjalda nábýlis af varnarliðinu, ættu þeir að gera sér ljóst að það er tímabært nú þegar og hefur verið það í raun allar götur frá því 1951 þegar bráðabirgðaráðstafanir voru gerðar á þessu svaði.
En varðandi orð hv. 4. þm. Norðurl. e. og reyndar fleiri hér sé ég ekki hvernig hægt er að ræða þessi mál öðruvísi en í samhengi við aðsetur varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Ég held að hv. þm. Alþb. verði að horfast í augu við það, að varnarliðið er hér af því að meiri hluti þjóðarinnar hefur samþykkt það. Það er lágmarkskrafa þeirra, sem búa í nágrenni við Keflavíkurflugvöll, að þannig sé búið að málum að ekki stafi hætta af nábýlinu eins og nú er um að ræða varðandi þessa olíutanka. Það er einmitt mergurinn málsins, að verið er að reyna að finna leiðir til að ráða bót á þessum vandamálum. Og ég verð að segja það, að með allri virðingu fyrir skoðunum hv. þm. Alþb. hljóta heimamenn að vita betur í þessum málum og þeirra skoðanir því að vera þyngri á metunum.