07.04.1981
Efri deild: 73. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3482 í B-deild Alþingistíðinda. (3541)

Umræður utan dagskrár

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég skildi það svo, að 3. umr. lánsfjárlaga hefði átt að fara fram í dag, en ég vil óska eftir því, að forseti skýri af hvaða ástæðu ekki er talið eðlilegt að þessi umr. fari fram. Eins og menn vita sjálfsagt var samkomulag um það milli þingflokka að þessi mál færu út úr Ed. í dag og síðan um ákveðin vinnubrögð í Nd. Mér finnst rétt að hv. þdm. fái skýringu á því af hverju þessi umr. fer ekki fram nú.