07.04.1981
Sameinað þing: 71. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3525 í B-deild Alþingistíðinda. (3553)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Jón Helgason):

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Tómas Árnason, 1. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara á sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Þessu fylgir enn fremur eftirfarandi bréf:

„4. apríl-1981.

Vegna anna heima fyrir er mér ekki unnt að sækja þingfundi næstu vikur og hef ég því óskað eftir því, að 2. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson, taki sæti á Alþingi í fjarveru Tómasar Árnasonar, 1. þm. Austurl.

Virðingarfyllst,

Guðmundur Gíslason.“

Enn fremur er hér kjörbréf Jóns Kristjánssonar, sem þarf að taka til athugunar þar sem Jón hefur ekki áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili, og vil ég biðja kjörbréfanefnd að taka það til athugunar. Er fundi frestað á meðan. — [Fundarhlé.]