08.04.1981
Efri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3547 í B-deild Alþingistíðinda. (3575)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Bygging flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli er afar þýðingarmikil framkvæmd því um er að ræða höfuðsamgöngumiðstöð landsmanna næstu áratugi. Þá mun þessi nýja bygging aðskilja herlíf og þjóðlíf svo sem margir hafa óskað eftir. Bygging flugstöðvar hefur og mikla þýðingu sem lausn á bágbornu atvinnuástandi á Suðurnesjum. Því segi ég já.