08.04.1981
Efri deild: 74. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3547 í B-deild Alþingistíðinda. (3577)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. M. a. til að aðskilja umsvif varnarliðsins og þjónustu við ferðamenn, sem leið eiga um Keflavíkurflugvöll, tel ég brýnt að bygging flugstöðvar hefjist sem fyrst og segi því já.