09.04.1981
Neðri deild: 75. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3594 í B-deild Alþingistíðinda. (3654)

298. mál, úrskurðaraðili í deilu um starfsaldurslista flugmanna

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Mér þykir rétt vegna þeirra ummæla, sem komu hér fram hjá hv. 1. þm. Reykv., að taka það fram, að ég á allan heiðurinn af þessu orði. Það er frá mér komið og hefur engin athugasemd verið við það gerð. Þetta er úrskurður sem um er að ræða, mér þykir orðið satt að segja fallegt og ég vil kannast við það.