10.04.1981
Efri deild: 80. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3610 í B-deild Alþingistíðinda. (3690)
293. mál, söluskattur
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Hv. 1. flm. þessa frv. og jafnframt sá sem mælti fyrir því lét þau orð falla, hvort einhver fjh.- og viðskn.-maður heyrði orðin. Svo var. Ég á sem kunnugt er sæti í fjh.- og viðskn.
Ég er að sjálfsögðu sammála flestu því sem hv. flm. talaði um hér í sinni framsögu. Ég hef ekki hugsað mér að fara mörgum örðum um þetta frv., ætla ekki að fara að ræða það í einstöku atriðum. Frv. svipaðs efnis og sama efnis raunar, sett fram með svolítið öðrum hætti, var rætt á liðnu þingi og ég tók þátt í þeirri umr., að sjálfsögðu með jákvæðu hugarfari eins og maður reynir allajafna. Hins vegar um framgang málsins hér á Alþingi er það nú svo, að það gengur misjafnlega að koma málum fram. Ég vil þó lýsa því yfir, að að sjálfsögðu verður þetta mál tekið til athugunar ekki síður en önnur mál sem til þeirrar nefndar koma.
Það er rétt hjá hv. flm., að það er skammur tími eftir af þingi og það eru mörg mál sem bíða umfjöllunar. Það var líka rétt hjá hv. flm., að það eru sum stærri mál heldur en þetta. Að vísu er kannske erfitt að leggja mat á það, hvaða mál eru stór og hvaða mál eru smá. Ég held þó, þegar betur er að gáð, að mörg réttlætismál fyrir landsbyggðina séu stórmál, þau séu flest stórmál í hugum okkar strjálbýlisfólks. En sem sagt, ég lýsi því yfir, að ég mun gera mitt til þess að þetta mál fái skoðun. Ég vil ekki á þessari stundu lofa neinu um framgang þess, en það mun fá mjög jákvæða skoðun.