10.11.1980
Efri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 549 í B-deild Alþingistíðinda. (378)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Helgi Seljan):
Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:
„Reykjavík, 6. nóvember 1980.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðmundur Gíslason kaupfélagsstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Tómas Árnason,
1. þm. Austurl.
Til forseta Ed.“
Of skammt var liðið frá útbýtingu frv. — Afbrigði samþ. með 16 shlj. atkv.