13.04.1981
Neðri deild: 80. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3702 í B-deild Alþingistíðinda. (3797)
217. mál, lánsfjárlög 1981
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson sagði hér: Ástæðan fyrir því, að nú er lagt til að heimila ríkisstj. 2 millj. kr. lántöku til þeirra þarfa sem þar um ræðir, er sú í fyrsta lagi, að ég hélt í kvöld þegar hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson greiddi atkv. gegn till. um 2.5 millj. að honum þætti það of mikið. Sé það ekki er ég reiðubúinn til samkomulags við hv. þm. um að flytja till. um hærri heimild til hæstv. ríkisstj. til þessa verkefnis því að sjálfsögðu eru ærin verkefni til þess að sinna. En hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson ásamt öðrum stjórnarliðum hér í deildinni greiddi atkv. gegn því, að 2.5 millj. yrði varið til þessa verkefnis. Sú er ástæðan. Það stóð ekki til að ég yrði meðflm. með þeim fjhn.-mönnum þessarar deildar. Þeir fluttu þessa till. sameiginlega, meiri hl. fjh.- og viðskn. Ég á ekki sæti í þeirri nefnd og taldi enga ástæðu til að blanda mér í þeirra tillöguflutning þar. Sú er önnur ástæðan.
Sem sagt, hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson, ég bið um samstarf um að koma í lægsta lagi 2 millj. til þessa verkefnis núna inn á lánsfjáráætlun. Viljir þú, hv. þm., hafa töluna hærri er ég til reiðu. (Gripið fram í: Það er bara að skrifa einn staf.) Já, já, það er fljótgert, en það verður beðið og það verður tekið eftir því, hvaða afstöðu þessi hv. þm. hefur þó til 2 millj. kr. upphæðarinnar á morgun.