14.04.1981
Neðri deild: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3734 í B-deild Alþingistíðinda. (3822)

217. mál, lánsfjárlög 1981

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég sé fulla ástæðu til þess að taka undir þá kröfu sem hv. 1. þm. Norðurl. v. bar hér fram áðan um að sú atkvgr., sem fram fór hér fyrir skömmu, verði endurtekin nú þegar.