04.05.1981
Efri deild: 91. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3917 í B-deild Alþingistíðinda. (3959)
Varamaður tekur þingsæti
Forseti (Helgi Seljan):
Mér hefur borist svohljóðandi bréf:
„Reykjavík, 30. apríl 1981.
Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson lektor, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Ólafur Jóhannesson,
5. þm. Reykv.“
Haraldur Ólafsson hefur áður átt sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans. Býð ég hann velkominn til starfa.