04.05.1981
Neðri deild: 87. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3936 í B-deild Alþingistíðinda. (3979)

123. mál, hollustuhættir

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Í ljósi þess, að mér þykir skattheimta ærin í landinu og mér er ekki kunnugt um að manndauði hafi hlotist af þó ekki væri starfandi stofnun með þessu nafni, og vitandi hitt, að ríkið leggur ekki þá fjármuni til sjúkrastarfsemi úti um land sem því ber að gera samkvæmt lögum, segi ég nei.