05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3964 í B-deild Alþingistíðinda. (4028)
389. mál, fréttasendingar til skipa
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég vil bara bæta því við þessa umr., að mér finnst stöðvun Landssímans á sendingum morsefrétta til íslenskra skipa alveg dæmigerð fyrir þvergirðingshátt Landssímans á mörgum sviðum. Þau kynni, sem ég hef haft af þessum málum í 13 eða 14 ár hjá Ríkisútvarpinu, voru þau, að fréttamenn skrifuðu þessar fréttir, þegar frístundir gáfust á kvöldvöktum, og sendu þær upp í Gufunes. Mér er kunnugt um að þar voru starfsmenn sem sendu þær á nákvæmlega sama hátt til skipanna þegar lítið var að gera uppi í Gufunesi. Líklega hefur það verið svo, að starfsmenn Landssímans í Gufunesi hafi hins vegar heimtað aukagreiðslur fyrir þessar sendingar, vegna þess að ég get ekki ímyndað mér að kostnaðurinn við að morsa fréttir út sé gífurlega mikill. Ég vil mælast eindregið til þess við hæstv. menntmrh., að hann knýi á um að allur sá fjöldi íslenskra sjómanna, sem er á skipum fjarri ströndum Íslands, eigi kost á að fá ágrip innlendra frétta sent til sín á hverju kvöldi eða hverri nóttu. Þetta er sjálfsögð og eðlileg þjónusta og hún er svo ódýr og á raunverulega ekkert að kosta, því þetta er eitt af þeim verkefnum sem starfsmenn bæði Landssímans og Ríkisútvarpsins ættu að gera með glöðu geði.